top of page
Uppskriftabók
95140077_845991012551858_258769277765550
Heimaslóðir
unnamed_edited.jpg
Amma
37922652_106917400242961_437166246687512

Kveikjan mín að þessari síðu var einfaldlega það að ég hef gaman af mat og mér finnst gott að borða með fjölskyldu og vinum. Það sem fékk mig til þess að ráðast á þetta verkefni svona eru minningar af mér og fjölskyldu minni að fara í  heimsókn til ömmu og afa. Þar sem ég bý austast á landinu og þau fyrir sunnan, hittum við hana ekki mjög oft. Þá var alltaf mikið við haft, ömmu var mjög umhugað um að gefa okkur eitthvað gott að borða og það myndaðist alltaf voða skemmtileg stemming í kringum það. Þetta er ein af þeim minningum sem situr fast í mér. Einn dagin sá ég uppskriftabókina á borði þar sem, amma hafði verið að glugga í hana og man ég að ég hugsaði hvaða ruslahrúga þetta væri sem hún sýndi svona mikin áhuga. Og nú löngu seinna mundi ég eftir uppskriftabókinni og falaðist eftir henni, því þarna taldi ég að eitthvað væri komið sem ég gæti unnið með. Ég spurði hvort ég mætti fá bókina lánaða, og hún vildi það gegn því að ég færi vel með hana. það samþyktki ég að sjálfsögðu og brosti. Ég þarf varla að taka það fram að þessar uppskriftir að framan eru aðvitað uppúr þessari yndislegu bók. Amma lumar á fleyri svona bókum, því hef ég hugsað mér að halda áfram þessu matarbloggi og langar að leyfa öðrum að sjá, búa til og smakka það sem amma mín setti í uppskriftabækurnar sínar. Þá er bara að byrja að elda.

 

bottom of page