top of page
  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Apr 29, 2020
  • 1 min read

Updated: May 3, 2020

Einfaldlega góð marengsterta sem er frábær í öll tilefni til að gleðja bragðlaukana.


Marengsbotnar:


  • 4 stk. eggjahvítur

  • 200 gr sykur

  • 1/2 tsk. lyftiduft


Þeytið saman hvítur og bætið sykri smá saman við ásamt lyftidufti og þeytið þar til blandan er orðin stíf.

Setjið blönduna á smjörpappír og myndið hring.

Bakað í ofni við 125-130°C í eina og hálfa klukkustund.


Á milli:


  • 1 peli rjómi þeyttur

  • 150 gr vínber blá og græn

  • 100 gr jarðarber

  • 70 gr bláber


Vínber skorin til hálfs og eins jarðarberin í hæfilega bita.

Öllu blandað saman við rjómann.


Ofan á:


  • 4 eggjarauður

  • 170 gr súkkulaði

  • dass af óþeyttum rjóma


Þeytið saman eggjarauðum.

Bræðið súkkulaði í vatnsbaði á hellu.

Þeytið síðan saman við eggjarauðurnar og þynnið með rjómanum.

Skreytið síðan að vild með góðu hugarflugi.











  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Apr 28, 2020
  • 1 min read

Updated: May 2, 2020

Forréttur sem klikkar ekki.

Graflax:


  • 1 laxaflak

  • 100 gr sykur

  • 100 gr salt

  • 2-3 msk þurrkað dill

  • 1/2 msk svartur pipar


Leggið flakið á álpappír.

Blandið sykri, salti, dilli og pipar saman og dreyfið blöndunni vel yfir laxinn.

Pakkið flakinu vel og þétt inn í álpappírinn.

Látið standa í kjæli í 2-3 daga og snúið 2-3 inn á milli.


Sósa:


  • 100 gr mæjones

  • 3 msk sírður rjómi

  • 2-3 msk sinnep

  • 1 msk þurrkað dill

  • Ein og hálf msk hunang


Hrærið öllu saman í skál.

Gott að gera deginum áður geymist í lokuðu íláti.


  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Apr 28, 2020
  • 1 min read

Updated: May 3, 2020

Sígildur sem stendur alltaf fyrir sínu. Uppskrift fyrir fjóra.

Sósa:


  • 100 gr sýrður rjómi

  • 125 gr majónes

  • 2 msk tómatsósa

  • 1 msk sætt sinnep

  • 1 tsk sojasósa

  • Smá seasonedsalt

  • Smá pipar


Allt hráefni sett í skál og hrært saman.


Hráefni:


  • 350 gr risa rækjur

  • 1 avakadó

  • 1 paprika

  • Iceberg

  • 1 lime


Látið rækjurnar þiðna í kælir yfir nótt.

Paprika og avakadó skorið í bita.

Setjið salat fyrst í glösin eða skálarnar þar næst rækjur avakadó og paprika, að lokum er sósan sett yfir.

Skreytið með gúrku, lime og steinselju.

bottom of page