top of page

Marengsterta

  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Apr 29, 2020
  • 1 min read

Updated: May 3, 2020

Einfaldlega góð marengsterta sem er frábær í öll tilefni til að gleðja bragðlaukana.


Marengsbotnar:


  • 4 stk. eggjahvítur

  • 200 gr sykur

  • 1/2 tsk. lyftiduft


Þeytið saman hvítur og bætið sykri smá saman við ásamt lyftidufti og þeytið þar til blandan er orðin stíf.

Setjið blönduna á smjörpappír og myndið hring.

Bakað í ofni við 125-130°C í eina og hálfa klukkustund.


Á milli:


  • 1 peli rjómi þeyttur

  • 150 gr vínber blá og græn

  • 100 gr jarðarber

  • 70 gr bláber


Vínber skorin til hálfs og eins jarðarberin í hæfilega bita.

Öllu blandað saman við rjómann.


Ofan á:


  • 4 eggjarauður

  • 170 gr súkkulaði

  • dass af óþeyttum rjóma


Þeytið saman eggjarauðum.

Bræðið súkkulaði í vatnsbaði á hellu.

Þeytið síðan saman við eggjarauðurnar og þynnið með rjómanum.

Skreytið síðan að vild með góðu hugarflugi.











Comments


bottom of page