Ávaxtagrautur
- Máni Snær Ólaafsson
- Feb 3, 2020
- 1 min read
Updated: May 2, 2020
Uppáhald ömmu minnar. Uppskrift fyrir fjóra.

Hráefni:
250 gr þurrkaðir blandaðir ávextir
100 gr sykur
50 gr kartöflumjöl
10 dl vatn
Aðferð:
Setjið 9 dl af vatni í pott ásamt sykri og ávöxtum og sjóðið í 40-50 mínutur þar til ávextirnir verða meirir, gott er að ýta á þá með kartöflustöpu.
Blandið 1 dl af vatni við kartöflumjöl og hrærið saman.
Blöndunni er bætt í pottinn og hrært við, lækikð hitann og látið ekki grautinn sjóða á meðan, Hafið á hitanum í 2-3 mínutur í viðbót.
Berist fram heitur eða kaldur.
Meðlæti:
Óþeyttur rjómi
Comments