Steikt lambalæri
- Máni Snær Ólaafsson
- Feb 3, 2020
- 1 min read
Updated: May 2, 2020
Lambasteik sem ekki er hægt að fá nóg af. Uppskrift fyrir 4-6 manns.

Lambalæri:
1 meðal læri
4 hvítlauksrif
1 tsk rósmarín þurrkað
1 tsk timian
1 tsk salt
1 tsk pipar
2 msk smjör
Sneiðið hvítlaukinn í báta.
Skerið litlar raufar í kjötið beggja megin og stingið hvítlauknum í raufarnar.
Smyrjið smjörinu á lærið og kryddið síðan með salt, pipar, rósmarín og timian.
Setjið í ofn við 180°C í eina til eina og hálfa klukkustund.
Brúnaðar kartöflur:
1 kg kartöflur
3-4 dl sykur
2 msk smjörliki
1 dl rjómi
Sjóðið og skrælið kartöflur í salt vatni.
Setjið sykur og smjörliki á vel heita pönnuna.
Brúnið sykurinn hrærið í öðru hvoru, þegar sykurinn er orðinn fallega brúnn og uppleistur, lækkið þá hitan og bætið rjómanum í og látið samlagast.
Setjið svo kartöflur út í sykurblönduna og veltið þeim í nokkrar mínutur svo þær fái fallegan gljáa.
Sósa:
1 stk piparostur
1 peli rjómi
Setjið rjóman í pott við meðal hita.
Myljið ostinn út í og látið hann leisast upp og hrærið í á meðan.
Þegar osturinn er bráðnaður er sósan tilbúin.
Comments