Kjötsúpa allt í einum potti
- Máni Snær Ólaafsson
- Feb 3, 2020
- 1 min read
Updated: May 2, 2020
Hvað er ekki betra á köldum degi en heimalöguð kjötsúpa. Uppskrift fyrir 6 manns.

Hráefni:
800 gr lambagúllas
2 L vatn
Hálfur bolli hrísgrjón
3 lamba súputeningar
Einn og hálfur dl súpujurtir
2-3 tsk salt
1 meðalstór rófa
3 meðalstórar gulrætur
1 lítill haus blómkál
1 laukur
Einn fjórði hvítkálshaus
6 kartöflur
Aðferð:
Setjið lambagúllas, salt, súputeninga og vatn í pott og sjóðið í 35 mínutur.
Flysjið kartöflur og rófur og skerið í bita.
Takið laukinn og saxið.
Takið gulrætur, blómkál og hvítkál og skerið í bita.
Bætið öllu í pottinn ásamt súpujurtum og hrísgrjónum og látið sjóða í 30 mínutur.
Smakkið til og athugið hvort salt eða lambakraft vantar.
Berið fram með brauði ef vill.
Comments