Mexíkósk kjúklingasúpa
- Máni Snær Ólaafsson
- Feb 3, 2020
- 1 min read
Updated: May 3, 2020
Þessi þykir einfaldlega best. Uppskrift fyrir fjóra til sex.

Hráefni:
500 gr kjúklingabringur
3-4 msk olía
1 laukur
5 litlir tómatar
100 gr blaðlaukur
1-2 chili
1 paprika
2 tsk paprikuduft
1 tsk túrmerik
3 tsk púrre
Einn og hálfur líter kjúklingasoð
1 krukka salsasósa
100 gr rjómaostur
Kjúklingakrydd
2 dl matreiðslurjómi
Aðferð:
Hitið einn og hálfan líter af vatni ásamt 1-2 kjúklingateningum í potti.
Skerið bringur í bita og kryddið með kjúklingakryddi.
Setjið á pönnu og steikið í 5-10 mínutur, setjið í skál til hliðar.
Laukur, paprika, blaðlaukur, chili og tómatar skorið hæfilega smátt og steikt á pönnu í olíu í 3-5 mínutur.
Setjið grænmetið í pottinn og sjóðið við vægan hita í 15 mínutur.
Bætið svo purre, salsa, rjómaost, kjúkling og rjóma við og sjóðið 5-10 mínutur í viðbót.
Meðlæti:
Sýrður rjómi
Nachoc flögur
Rifinn ostur
Comments