top of page
  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Apr 28, 2020
  • 1 min read

Updated: May 3, 2020

Frábær forréttur sem hittir á bragðlaukana sem vert er að prófa. Þessi uppskrift er fyrir fjóra.

Sósa:


  • 2 msk hvítlaukssmjör

  • 1 stk shallotulaukur

  • 2 dl fisksoð

  • 1 dl hvítvín

  • Einn og hálfur dl rjómi

  • 1 msk smjör

  • Salt

  • Pipar

  • 2 tsk söxuð steinselja


Takið pott og léttsteikið laukinn í hvítlaukssmjörinu við miðlungshita í 2 mínutur.

Bætið fisksoði og hvítvíni saman við og látið sjóða nyður um helming.

Bætið við rjóma og steinselju, saltið og piprið eftir smekk.

Takið smjörið og setjið út í eftir það má sósan ekki sjóða.



Hörpuskel.


  • 350 gr hörpuskel

  • 50 gr smjör

  • 2 hvítlauksgeirar smátt saxaðir

  • 1 msk olía


Olía, smjör og hvítlaukur sett á pönnu og hitað.

Setjið hörpudiskinn á og veltið honum til í 3-4 mínutur.

Fært á disk ásamt sósu og skreyta með steinselju. Berið fram með góðu brauði.


  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Apr 27, 2020
  • 1 min read

Updated: May 2, 2020

Þessi gamli góði. Uppskrift fyrir fjóra.

Hráefni:


  • 400 gr ýsuflök

  • 400 gr kartöflur

  • 1 laukur

  • 3 hvítlauksrif

  • 100 gr ostur

  • 100 gr smjör

  • 1 tsk hvítur pipar

  • 1-2 tsk salt


Aðferð:


Ýsa soðin í nokkrar mínutur 5-6.

Kartöflur soðnar, skrældar og skornar í bita og maukaðar saman við fiskinn.

Laukur saksaður.

Hvítlauksrif og laukur skorið smátt, sett í pott og mýkt upp í hluta af smjörinu.

Bræðið restina af smjörinu við í pottinum.

Setjið ýsu, kartöflur og ost saman við ásamnt salt og hvítum pipar.

Hitið í 10 mínutur hrært í með sleif.

Setjið á disk með góðu rúgbrauði.



  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Apr 26, 2020
  • 1 min read

Updated: May 2, 2020

þægilegur ofnbakaður lax fyrir fjóra. Eða á grillið.

Hráefni:


  • 800 gr lax

  • 1/2 dl hunang

  • salt

  • pipar

  • 1 appesína

  • 1 sítróna

  • steinselja


Aðferð:


Skerið laxinn í stykki og setjið á álpappír hvern bita fyrir sig.

Saltið og piprið laxinn og hellið hunangi yfir.

Skerið appelsínu og sítrónu í sneiðar og leggið yfir bitana.

Bakað í heitum ofni við 180°C í 15 mínutur, fer þó aðeins eftir þykkt stykkjana.

Borið fram með soðnum kartöflum, smjöri og fersku salati.

Stráið ferskri steinselju yfir.


bottom of page