top of page
  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Feb 3, 2020
  • 1 min read

Updated: May 2, 2020

Lambasteik sem ekki er hægt að fá nóg af. Uppskrift fyrir 4-6 manns.

Lambalæri:


  • 1 meðal læri

  • 4 hvítlauksrif

  • 1 tsk rósmarín þurrkað

  • 1 tsk timian

  • 1 tsk salt

  • 1 tsk pipar

  • 2 msk smjör


Sneiðið hvítlaukinn í báta.

Skerið litlar raufar í kjötið beggja megin og stingið hvítlauknum í raufarnar.

Smyrjið smjörinu á lærið og kryddið síðan með salt, pipar, rósmarín og timian.

Setjið í ofn við 180°C í eina til eina og hálfa klukkustund.


Brúnaðar kartöflur:


  • 1 kg kartöflur

  • 3-4 dl sykur

  • 2 msk smjörliki

  • 1 dl rjómi


Sjóðið og skrælið kartöflur í salt vatni.

Setjið sykur og smjörliki á vel heita pönnuna.

Brúnið sykurinn hrærið í öðru hvoru, þegar sykurinn er orðinn fallega brúnn og uppleistur, lækkið þá hitan og bætið rjómanum í og látið samlagast.

Setjið svo kartöflur út í sykurblönduna og veltið þeim í nokkrar mínutur svo þær fái fallegan gljáa.


Sósa:


  • 1 stk piparostur

  • 1 peli rjómi


Setjið rjóman í pott við meðal hita.

Myljið ostinn út í og látið hann leisast upp og hrærið í á meðan.

Þegar osturinn er bráðnaður er sósan tilbúin.


  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Feb 3, 2020
  • 1 min read

Updated: May 2, 2020

Frábær tilbreyting fyrir fjölskylduna. Uppskrift fyrir fjóra.

Hráefni:


  • 600 gr ýsa

  • 10-12 kartöflur


Orlideig:


  • 250 gr hveiti

  • 1 egg

  • 2 dl pilsner

  • 1 msk tómatpurre

  • 1 msk sinnep

  • 1/2 dl matarolía

  • 2 tsk salt

  • 1/2 tsk sykur

Þessu er öllu blandað vel saman og geymt í kæli í 20 mínutur


Aðferð:


Hitið djúpsteikingarpottinn.

Sjóðið kartöflur í pott í 15-20 mínutur og skerið í hæfilega báta.

Skerið ýsuflök í hæfilega bita.

Fiskinum er velt upp úr hveiti áður en hann er settur í orlideigið.

Setjið fiskinn í pottinn og látið steikjast í 3-5 mínutur, þar til fallega brúnt, setjið á disk.

Kartöflur teknar og settar í pottinn og látnar gyllast í 2-3 mínutur.


Meðlæti:


  • Gott salat

  • Sítróna

  • Hvítlaukssósa/kokteilsósa


  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Feb 3, 2020
  • 1 min read

Updated: May 3, 2020

Þessi þykir einfaldlega best. Uppskrift fyrir fjóra til sex.

Hráefni:


  • 500 gr kjúklingabringur

  • 3-4 msk olía

  • 1 laukur

  • 5 litlir tómatar

  • 100 gr blaðlaukur

  • 1-2 chili

  • 1 paprika

  • 2 tsk paprikuduft

  • 1 tsk túrmerik

  • 3 tsk púrre

  • Einn og hálfur líter kjúklingasoð

  • 1 krukka salsasósa

  • 100 gr rjómaostur

  • Kjúklingakrydd

  • 2 dl matreiðslurjómi


Aðferð:


Hitið einn og hálfan líter af vatni ásamt 1-2 kjúklingateningum í potti.

Skerið bringur í bita og kryddið með kjúklingakryddi.

Setjið á pönnu og steikið í 5-10 mínutur, setjið í skál til hliðar.

Laukur, paprika, blaðlaukur, chili og tómatar skorið hæfilega smátt og steikt á pönnu í olíu í 3-5 mínutur.

Setjið grænmetið í pottinn og sjóðið við vægan hita í 15 mínutur.

Bætið svo purre, salsa, rjómaost, kjúkling og rjóma við og sjóðið 5-10 mínutur í viðbót.


Meðlæti:


  • Sýrður rjómi

  • Nachoc flögur

  • Rifinn ostur



bottom of page