top of page
  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Feb 3, 2020
  • 1 min read

Updated: May 2, 2020

Vinsæll og góður ís við öll tilefni.

Hráefni:


  • 1/2 rjómi

  • 5 eggjarauður

  • 1 dl púðursykur

  • 100 gr toblerone + 50 gr brytjað


Aðferð:


Byrjið á því að þeyta rjóman sér.

Þeytið eggjarauður og púðursykur vel saman.

Bræðið 100 gr toblerone í vatnbaði á hellu, takið síðan og bætið við eggjablönduna.

Takið blönduna og blandið við rjómann ásamt brytjuðu toblerone með sleif.

Setjið í form og álpappír yfir og frystið.




  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Feb 3, 2020
  • 1 min read

Updated: May 2, 2020

Hvað er ekki betra á köldum degi en heimalöguð kjötsúpa. Uppskrift fyrir 6 manns.

Hráefni:


  • 800 gr lambagúllas

  • 2 L vatn

  • Hálfur bolli hrísgrjón

  • 3 lamba súputeningar

  • Einn og hálfur dl súpujurtir

  • 2-3 tsk salt

  • 1 meðalstór rófa

  • 3 meðalstórar gulrætur

  • 1 lítill haus blómkál

  • 1 laukur

  • Einn fjórði hvítkálshaus

  • 6 kartöflur


Aðferð:


Setjið lambagúllas, salt, súputeninga og vatn í pott og sjóðið í 35 mínutur.

Flysjið kartöflur og rófur og skerið í bita.

Takið laukinn og saxið.

Takið gulrætur, blómkál og hvítkál og skerið í bita.

Bætið öllu í pottinn ásamt súpujurtum og hrísgrjónum og látið sjóða í 30 mínutur.

Smakkið til og athugið hvort salt eða lambakraft vantar.

Berið fram með brauði ef vill.








  • Writer: Máni Snær Ólaafsson
    Máni Snær Ólaafsson
  • Feb 3, 2020
  • 1 min read

Updated: May 2, 2020

Uppáhald ömmu minnar. Uppskrift fyrir fjóra.

Hráefni:


  • 250 gr þurrkaðir blandaðir ávextir

  • 100 gr sykur

  • 50 gr kartöflumjöl

  • 10 dl vatn


Aðferð:


Setjið 9 dl af vatni í pott ásamt sykri og ávöxtum og sjóðið í 40-50 mínutur þar til ávextirnir verða meirir, gott er að ýta á þá með kartöflustöpu.

Blandið 1 dl af vatni við kartöflumjöl og hrærið saman.

Blöndunni er bætt í pottinn og hrært við, lækikð hitann og látið ekki grautinn sjóða á meðan, Hafið á hitanum í 2-3 mínutur í viðbót.

Berist fram heitur eða kaldur.


Meðlæti:


  • Óþeyttur rjómi


bottom of page